Kristján Ingi Smárason

Kristján Ingi Smárason mun tefla á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer um komandi helgi í Kópavogi. Kristján vann sér inn keppnisrétt á mótið í sérstakri undankeppni sem fram fór sl. fimmtudag (19 maí) á Chess.com.

Sjálf úrslitakeppnin fer fram 28.-29.  maí við glæsilegar aðstæður í húsnæði Siglingaklúbb Kópavogs að Naustavör 14. Úrslitin verða tefld í tíu manna flokkum þar sem allir tefla við alla, tíu keppendur í yngri flokki (1.-7. bekkur) og tíu keppendur í eldri flokki (8.-10. bekkur). Kristján teflir í eldri flokki. Umhugsunartími verður 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik.

Uppfært 1. júní.

Matthías Björgvin og Ingvar Wu Landsmeistarar í skólaskák