Óskar Víkingur Davíðsson, Batel Goitom Haile og Stefán Orri voru öll efst og jöfn með 5v af sex mögulegum á fyrstu Huginsæfingu á árinu 2017 sem fram fór 9. janúar. Þau skiptust á að vinna hvort annað svo grípa þurfti til stigaútreiknings, Í fyrsta útreikningi voru Óskar og Batel með 14 stig og Stefán Orri 13 stig. Stefán Orri var þar með í þriðja sæti. Í öðrum útreikningi var Óskar með 17 stig og Batel með 16. Óskar fékk því 1. sætið og Batel var önnur.

Í æfingunni tóku þátt: Óskar Víkingur Davíðsson, Batel Goitom Haile, Einar Dagur Brynjarsson, Sigurður Ríkharð Marteinsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Brynjar Haraldsson,  Rayan Sharifa, Garðar Már Einarsson, Sigurður Rúnar Gunnarsson, Gunnar Freyr Valsson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson, Andri Hrannar Elvarsson, Bergþóra Helga Gunnarsdóttir, Alfreð Dossing og Witbet Haile.

Næsta æfing verður mánudaginn 16. janúar 2017 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.