Sérstakar skákæfingar og kennsla fyrir börn á grunnskólaaldri í Þingeyjarsýslu hefjast miðvikudaginn 18. janúar. Skákæfingarnar verða ókeypis og fara þær fram í Seiglu – miðstöð sköpunar (áður Litlaulaugaskóli) í Reykjadal.
Æfingarnar fara fram annan hvern miðvikudag til að byrja með og einn sunnudag í hverjum mánuði. Reiknað er með að hver æfing standi yfir í um einn og hálfan klukkutíma. Hluti af æfingatímanum verður nýttur til kennslu.
Æfingaáætlun í janúar og febrúar. (áætlun fyrir mars, apríl og maí birt síðar)
Miðvikudagur 18. jan kl: 16:00
Sunnudagur 22. jan kl: 13:30
Miðvikudagur 1. feb kl: 16:00
Miðvikudagur 15. feb kl: 16:00
Sunnudagur 26. feb kl 13:30
Hermann Aðalsteinsson, Rúnar Ísleifsson, Smári Sigurðsson og Sigurbjörn Ásmundsson munu skiptast á um að sjá um skákæfingarnar í vetur. Einnig er stefnt að því að fá vanan skákkennara að sunnan í heimsókn eina helgi í vetur, en dagsetning liggur ekki fyrir.
Þar sem æfingarnar verða ókeypis er ekki nauðsynlegt að forskrá þátttakendur. Allur skákbúnaður verður til staðar.
Miklar líkur eru á því að hefðbundin skákmót fyrir börn og unglinga sem fara venjulega fram í mars og apríl í sýslunni verði haldin þegar einn af skákæfingartínumum er á áætlun í mars eða apríl. Eins er líklegt að samstarf verði við Skákfélag Akureyrar um barna og unglingamót með vorinu.
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag skákæfinganna verða birtar á facebooksíðu skákfélagsins Hugins í Þingeyjarsýslu og eru foreldrar barna á svæðinu sem ekki eru nú þegar skráð þar hvött til að óska eftir aðgangi þar.