10.3.2012 kl. 20:41
Reykjavík Open. Einar með enn eitt jafntefli gegn stórmeistara. Sigurður Daði og Kristján unnu báðir.
Einar Hjalti Jensson gerði jafntefli við Bandaríska stórmeistarann Maurice Ashley í 5. umferð á Reykjavík Open sem tefld var í dag. Einar er búinn að tefla mjög vel á mótinu og er búinn að gera jafntefli við þrjá stórmeistara á mótinu og einn mjög sterkan alþjóðlegan meistara. Einar er einn fárra Íslendinga sem er enn taplaus.

Einar er með Ratingperformance upp á 2414 stig og er sem stendur með stigagróða upp á 19,8 fide-skákstig. Ekki slæmt það eftir 5 umferðir. Einar er með 3 vinninga í 51. sæti. Einar verður með hvítt gegn Halldóri Pálssyni (2000) í 6. umferð á morgun.

Sigurður Daði Sigfússon vann Kanadískan andstæðing i dag og er með 3,5 vinninga í 31 sæti.
Sigurður Daði stýrir hvítu mönnunum gegn frönskum stórmeistara að nafni Fabien Libiszewski (2523) í 6. umferð á morgun.

Kristján Eðvarðsson vann sinn andstæðing í 5. umferð í dag. kristján er í 86. sæti með 3 vinninga. Kristján teflir með hvítt gegn þjóðverjanum Dr. Martin Zumsande (2439) í 6. umferð á morgun.
