Fyrsta skemmtikvöld Hugins á norðursvæði í vetur verður haldið í Dalakofanum á Laugum í Reykjadal nk. laugardagskvöld kl 20:30. Á dagskrá verður fyrirlestur um Milljónamótið í Las Vegas frá sjónarhóli Hermanns Aðalsteinssonar.

vegas_umf1_08

 

Herman segir frá mótinu, sýnir nokkrar skákir og birtir myndir sem ekki hafa verið birtar áður. Einnig mun Hermann sýna stutt brot úr væntanlegri heimildamynd um skák á Íslandi, en kvikmyndagerðarmaður var með í förinnni til Las Vegas og mun vænn hluti væntanlegra myndir vera tekinn upp í Las Vegas.

Félagsmenn Hugins og nágrannar okkar hjá Skákfélagi Akureyrar eru boðnir velkomnir á skemmtikvöldið í Dalakofanum.