22.4.2009 kl. 23:49
Smári héraðsmeistari HSÞ 2009
Smári Sigurðsson varð í kvöld héraðsmeistari HSÞ í skák, en héraðsmótinu lauk nú í kvöld. Smári fékk 6,5 vinninga af 7 mögulegum. Smári vann 6 skákir og gerði jafntefli við Ármann Olgeirsson. Pétur Gíslason varð í öðru sæti með 5,5 vinninga og Rúnar Ísleifsson varð í 3. sæti með 4,5 vinninga.
Tefldar voru atskákir með 25 mín umhugsunartíma á mann.
Lokastaðan:
1. Smári Sigurðsson 6,5 af 7 mögul.
2. Pétur Gíslason 5,5
3. Rúnar Ísleifsson 4,5
4. Ármann Olgeirsson 4
5. Benedikt Þorri Sigurjónsson 3,5
6. Ævar Ákason 3
7. Hermann Aðalsteinsson 1
8. Sigurbjörn Ásmundsson 0
Pétur Gíslason, Smári Sigurðsson og Rúnar Ísleifsson
Þetta er í annað skiptið sem Smári verður héraðsmeistari í skák, en Smári vann titilinn fyrst árið 2007. Rúnar vann mótið í fyrra en Pétur varð héraðsmeistari 2006, þegar mótið var haldið í fyrsta sinn eftir langt hlé.
Verðlaun fyrir skákþing Goðans frá því fyr í vetur voru einnig afhent nú í kvöld. En þar hafði sigur Benedikt Þorri, Smári Sigurðsson varð í öðru sæti og Pétur Gíslason í þriðja sæti.
Smári Sigurðsson, Benedikt Þorri og Pétur Gíslason
Síðasta skákæfing félagsins í vetur, verður á Húsavík að viku liðinni. H.A.