Ingimar Ingimarsson, Smári Sigurðsson og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson

Smári Sigurðsson vann öruggan sigur á Hraðskákmóti Goðans 2023 sem fram fór á Húsavík í gær. Smári vann allar sínar skákir fyrir utan eina, sem endaði með jafntefli. Smári fékk 10,5 vinninga af 11 mögulegum á mótinu !

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og Ingimar Ingimarsson komu heldur betur á óvart á mótinu. Aðalsteinn Jóhann landaði 9 vinningum á sínu fyrsta skákmóti hjá Goðanum. Sá árangur dugði til silfurverðlauna. 8 vinningar Ingimars Ingimarssonar á mótinu, voru líka óvæntir og þeir dugðu til bronsverðlauna. Aðalsteinn og Ingimar voru báðir stiglausir með öllu fyrir mótið og skutu þannig mörgum vönum skákmönnum Goðans, ref fyrir rass.

Félag
1. Sigurdsson, Smari 1944 10.5
2. Friðriksson Adalsteinn Johann 0 9.0
3. Ingimarsson Ingimar 0 8.0
4. Isleifsson, Runar 1776 7.5
5. Smarason, Kristjan Ingi 1412 7.0
6. Gulyas Adam Ferenc 0 7.0
7. Gudjonsson, Ingi Haflidi 1382 4.5
8. Adalsteinsson, Hermann 1560 4.0
9. Asmundsson, Sigurbjorn 1502 3.5
10. Hakonarson, Vidar Njall 0 3.0
11. Davidsson Óskar Pall 0 2.0
12. Kotleva, Annija 1073 0.0

Mótið á chess-manager.

Tímamörk voru af gamla skólanum, 5 mín sléttar og tefld var einföld umferð allir við alla. Viðar Njáll Hákonarson og Óskar Páll Davíðsson voru að taka þátt í sínu fyrsta hraðskákmóti hjá Goðanum og náðu báðir ágætum árangri. Fimm stiglausir skákmenn tóku þátt í mótinu og lítur út fyrir að allir hafi þeir unnið sér inn sín fyrstu hraðskákstig, sem birt verða 1. janúar 2024. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Railis Kotlevs tók á mótinu.

Frá mótinu í gærkvöld
Frá mótinu
Frá mótinu