Feðgarnir Smári Sigurðsson og Kristján Ingi Smárason eru efstir og jafnir með 3,5 vinninga í Húsavíkur-riðli, þegar aðeins einni skák er ólokið í riðlinum. Smári á eftir eina skák, gegn Hilmari Frey Birgissyni og fer hún fram í næstu viku. Það verður sannkölluð úrslita skák því með sigri eða jafntefli tryggir Smári sér sigur í riðlinum, en vinni Hilmar tryggir hann sér sigur í riðlinum. Aðrir keppendur í riðlinum hafa lokið öllum sínum skákum.
Staðan í Húsavíkur-riðli.
Smári Sigurðsson 3,5 (1 eftir)
Kristján Ingi Smárason 3,5
Adam Ferenc Gulyas 3
Hilmar Freyr Birgisson 3 (1 eftir)
Sigmundur Þorgrímsson 1
Dorian Lesman 0
Flestir keppendur í Vestur-riðli eiga eftir 2 skákir. Rúnar Ísleifsson og Jakob Sævar Sigurðsson eru með 3,5 vinninga og taplausir enn sem komið er. Ingi Hafliði Guðjónsson er með 3 vinninga. Aðrir eru með færri vinninga.
Staðan í Vestur-riðli.
Rúnar Ísleifsson 3,5 (2 eftir)
Jakob Sævar Sigurðsson 3,5 (2 eftir)
Ingi Hafliði Guðjónsson 3 (2 eftir)
Ingimar Ingimarsson 2 (2 eftir)
Ævar Ákason 2 (búinn)
Hermann Aðalsteinsson 1 ( 2 eftir)
Sigurbjörn Ásmundsson 0 ( 2 eftir)
Jakob Sævar og Hermann mætast á sunnudag og fleiri skákir munu fara fram eftir helgina. Stefnt er að því að klára riðlakeppnina fyrir 10 febrúar.