Riðlakeppni Skákþings Hugins í Þingeyjarsýslu er lokið. 11 skákmenn taka þátt í mótinu og er það teflt í tveimur riðlum, flippsturluðum austurriðli (teflt á Húsavík) og flippflennifínum vesturriðli (teflt á Vöglum).

Flippsturlaður austurrilill

Í austurriðli eru 6 keppendur sem tefla allir við alla. Smári Sigurðsson og Sigurður Daníelsson enduðu efstir og jafnir með 4 vinninga af 5 mögulegum, en Smári er sjónarmun á undan þar sem hann hafði betur í innbyrðisviðureign þeirra félaga. Sigurður Daníelsson er því í öðru sæti og Ævar Ákason í þriðja sæti með 3 vinninga.

Flippsturlaður austurriðill
Sæti. Nafn Stig Vinn.  TB1  TB2  TB3
1 Sigurdsson Smari 1870 4 1 4 9
2 Danielsson Sigurdur 1780 4 0 4 7
3 Akason Aevar 1501 3 0 3 4
4 Vidarsson Hlynur Snaer 1476 2 1 2 2
5 Karlsson Sighvatur 1274 2 0 2 4
6 Smarason Kristjan Ingi 0 0 0 0 0

 

Flippflennifínn vesturriðill

Í vesturriðli, sem er tefldur á Vöglum í Fnjóskadal, eru fimm keppendur.

Tómas Veigar Sigurðarson lagði alla andstæðinga sína og er því efstur. Rúnar Ísleifsson er í 2. sæti með 3 vinninga og Ármann Olgeirsson og Hermann Aðalsteinsson eru jafnir í 3.-4. sæti með 1,5 vinning. Ármann er sjónarmun á undan og teflir því um 5.-6. sætið í úrslitakeppninni.

Flippflennifínn vesturriðill
Sæti Töfluröð Nafn Stig Vinn.  TB1  TB2  TB3
1 4 Sigurdarson Tomas Veigar 1981 4 0 4 6
2 5 Isleifsson Runar 1821 3 0 3 3
3 1 Olgeirsson Armann 1513 1,5 0,5 1 0,75
2 Adalsteinsson Hermann 1589 1,5 0,5 1 0,75
5 3 Asmundsson Sigurbjorn 1417 0 0 0 0

Sprúðlandi úrslitakeppni

Úrslitakeppni Skákþingsins fer fram á næstu vikum. Hún fer þannig fram að sigurvegarar riðlanna tefla um 1. og 2. sætið o.s.frv.

1.-2. Tómas Veigar Sigurðarson Smári Sigurðsson
3.-4. Rúnar Ísleifsson Sigurður Daníelsson
5.-6. Ármann Olgeirsson Ævar Ákason
7.-8. Hermann Aðalsteinsson Hlynur Snær Viðarsson
9.-10. Sigurbjörn Ásmundsson Sighvatur Karlsson
11.-12. Kristján Ingi Smárason