Vetrarmót Öðlinga.Tómas með jafntefli en Páll og Sigurður töpuðu.

4. umferð Vetrarmóts öðlinga var tefld í gærkvöld. Tómas Björnsson gerði jafntefli við Siguringa Sigurjónsson (1935), Páll Ágúst Jónsson tapaði fyrir Birni Frey Björnssyni (2164) og Sigurður Jón Gunnarsson tapaði fyrir Kristjáni Erni Elíassyni (1906) Skák Björns Þorsteinssonar við Björn Jónsson (2045) var frestað.

Framsýnarmótið 2010 012

Tómas Björnsson er efstur okkar manna með 3 vinninga í 7. sæti á mótinu. Björn hefur 2 vinninga í 14. sæti en á inni frestaða skák. Páll Ágúst hefur einnig 2 vinninga í 19. sæti og Sigurður Jón hefur 1,5 vinning í 35. sæti. Alls taka 47 skákmenn þátt í mótinu.

Pörun í 5. umferð er ekki ljós.