Dagskrá

Æfinga og mótaáætlun Goðans 2024-25. Chess events 2024-25

okt
5
Fim
Meistaramót Hugins @ Félagsheimili Hugins
okt 5 @ 19:30 – nóv 17 @ 23:30

Meistaramót Hugins (suðursvæði) 2017 hefst miðvikudaginn 23. ágúst klukkan 19:30. Mótið er 7 umferða opið kappskákmót sem lýkur 2. október. Leyft verður að taka 2 yfirsetur í 1.- 6. umferð sem tilkynna þarf um fyrir lok næstu umferðar á undan. Vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði. Umhugsunartíminn verður 1½ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.

Mótið er öllum opið og er reiknað til alþjóðlegra og íslenskra skákstiga. Skráning í mótið er á skak.is en einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í skákstjóra s-866-0116 (Vigfús).

Mótið hefst á miðvikudegi en aðrir skákdagar eru á mánudögum nema lokaumferðin sem verður áfimmtudegi. Að þessu sinni verður aðeins ein umferð í hverri viku. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

 

Umferðartafla:

  • 1. umferð, miðvikudaginn, 23. ágúst, kl. 19:30
  • 2. umferð, mánudaginn, 28. ágúst, kl. 19:30
  • 3. umferð, mánudaginn, 4. september, kl. 19:30
  • 4. umferð, mánudaginn, 11. september, kl. 19:30
  • 5. umferð, mánudaginn, 18. september, kl. 19:30
  • 6. umferð, mánudaginn, 25. september, kl. 19:30
  • 7. umferð, fimmtudagur, 5. október, kl. 19:30
des
4
Mán
Barna- og unglingaæfingar Hugins í Mjódd @ Félagsheimili Hugins í Mjódd
des 4 @ 17:00 – 19:00

Barna- og unglingaæfingar Skákfélagsins Hugins í Mjóddinni eru á hverjum mánudegi í vetur utan stórhátíða.

Æfingarnar byrja kl. 17:15 og þeim lýkur yfirleitt rétt fyrir kl. 19.

Æfingarnar eru opnar öllum 15 ára og yngri en skipt verður í tvo flokka eftir aldri og styrkleika á flestum æfingum.

Engin þátttökugjöld.

Æfingarnar verða haldnar í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a, Mjódd. Inngangur er milli Fröken Júlíu og Subway en salur félagsins er á þriðju hæð hússins.

Á æfingunum verða 5 eða 6 umferðir með umhugsunartíma 10 eða 7 mínútur. Einnig verður farið í dæmi og endatöfl eins og tíma vinnst til.

des
11
Mán
Barna- og unglingaæfingar Hugins í Mjódd @ Félagsheimili Hugins í Mjódd
des 11 @ 17:00 – 19:00

Barna- og unglingaæfingar Skákfélagsins Hugins í Mjóddinni eru á hverjum mánudegi í vetur utan stórhátíða.

Æfingarnar byrja kl. 17:15 og þeim lýkur yfirleitt rétt fyrir kl. 19.

Æfingarnar eru opnar öllum 15 ára og yngri en skipt verður í tvo flokka eftir aldri og styrkleika á flestum æfingum.

Engin þátttökugjöld.

Æfingarnar verða haldnar í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a, Mjódd. Inngangur er milli Fröken Júlíu og Subway en salur félagsins er á þriðju hæð hússins.

Á æfingunum verða 5 eða 6 umferðir með umhugsunartíma 10 eða 7 mínútur. Einnig verður farið í dæmi og endatöfl eins og tíma vinnst til.

des
17
Sun
Jólapakkamót Hugins – Skráning og skráðir keppendur @ Álfhólsskóli
des 17 @ 13:00
Jólapakkamót Hugins - Skráning og skráðir keppendur @ Álfhólsskóli | Kópavogur | Ísland

Jólapakkaskákmót Hugins verður haldið sunnudaginn 17. desember nk. í Álfhólsskóla (Hjallaskóli Álfhólsvegi 120). Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 20. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.

Keppt verður í allt að 6 flokkum:

  • Flokki fæddra 2002-2004
  • Flokki fæddra 2005-2006
  • Flokki fæddra 2007-2008
  • Flokki fæddra 2009-2010
  • Flokki fæddra 2011 síðar
  • Peðaskák fyrir þau yngstu

Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Skráning

Hraðskákmót Hugins (N) 2017 @ Framsýn
des 17 @ 14:00
Hraðskákmót Hugins (N) 2017 @ Framsýn | Húsavík | Ísland

Hið árlega hraðskákmót Hugins (N) fer fram sunnudaginn 17. desember og hefst kl. 14.

Teflt verður í Framsýnarsalnum, Garðarsbraut 26 á Húsavík.

Líklegt er að allir tefli við alla, jafnvel tvöfalda umferð, en það fer eftir þátttöku.

Tímamörk verða 5 mínútur á skák og mótsgjaldið er 500 krónur.

Núverandi hraðskákmeistari er Smári Sigurðsson.

Skráning