Æfinga og mótaáætlun Goðans 2024-25. Chess events 2024-25
Kæru félagar. Nú prófum við að halda skákæfingu á Tornelo. Þeir sem eru ekki með aðgang að Tornelo þurfa að stofna hann, sem er frír. Ég mæli með því að þið notið ykkar eigið nafn og veljið ykkur lykilorð. Æfingin fer fram á lokuðu svæði Goðans (Organization) á Torenlo. Smella hér
Ég reikna með því að vera arbiter (mótsstjóri) og og tefli því ekki með á þessari æfingu. Það er alveg hugsanlegt að það þurfi að stilla og laga eitthvað til áður en við byrjum og þá hef ég tíma til þess ef ég tefli ekki með. Æfingin verður stillt á allir við alla (round robin)og það er hægt að breyta tímamörkunum ef mikil þátttaka verður í æfingunni.
Við notum Google Meet til að spjalla saman áður en við byrjum og á milli umferða. Smellið á “Open video room” og það segir sig sjálft hvernig það virkar.
Torenlo hefur breyst mikið frá því að við notuðum það síðast, en vonandi verður það ekki vandamál.