Æfinga og mótaáætlun Goðans 2024-25. Chess events 2024-25
des
11
Mán
![Hraðskákmót Goðans 2023 @ Framsýn](https://i0.wp.com/godinn.is/wp-content/uploads/2021/05/Allir-Farandbikarar-Godans.jpg?fit=250%2C185&ssl=1)
Hraðskákmót Goðans 2023 fer fram í Framsýnarsalnum á Húsavík mánudagskvöldið 11. desember og hefst mótið kl 20:00. Tímamörk eru af gamla skólanum, 5 mín á mann (og ekkert viðbótartíma kjaftæði) og allir tefla við alla.
Hefðbundin verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu og sigurvegarinn fær farandbikar og nafnbótina Hraðskákmeistari Goðans 2023
des
28
Fim
![Jólamót Goðans 2023 @ Hlöðufell](https://i0.wp.com/godinn.is/wp-content/uploads/2023/11/Hlodufell.jpg?fit=250%2C167&ssl=1)
Jólamót Goðans 2023 fer fram á veitingastaðnum Hlöðufelli á Húsavík fimmtudaginn 28 desember og hefst það kl 13:00. Áætluð mótlok eru um kl 16:00. Tefldar verða að hámarki 7 umferðir og verða tímamörkin 10 mín + 2 sek/á leik í viðbótar tíma.
Mótið verður reiknað til atskákstiga hjá FIDE.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu. Ókeypis verður í mótið
Subscribe