Dagskrá

Æfinga og mótaáætlun Goðans 2024-25. Chess events 2024-25

sep
23
Mán
Tornelo æfing 23. sept @ Tornelo.com
sep 23 @ 20:15 – 22:00
Tornelo æfing 23. sept @ Tornelo.com

Kæru félagar. Nú prófum við að halda skákæfingu á Tornelo. Þeir sem eru ekki með aðgang að Tornelo þurfa að stofna hann, sem er frír. Ég mæli með því að þið notið ykkar eigið nafn og veljið ykkur lykilorð. Æfingin fer fram á lokuðu svæði Goðans (Organization) á Torenlo. Smella hér og smellið síðan á “Mánudagsæfing 23. sept 2024” Þar ættuð þið að geta skráð ykkur til leiks. Það væri æskilegt að gera það, þess vegna strax eða amk. nægilega snemma, svo að nægur tími sé til stefnum ef eitthvað klikkar.

Ég reikna með því að vera arbiter (mótsstjóri) og og tefli því ekki með á þessari æfingu. Það er alveg hugsanlegt að það þurfi að stilla og laga eitthvað til áður en við byrjum og þá hef ég tíma til þess ef ég tefli ekki með. Æfingin verður stillt á allir við alla (round robin)og það er hægt að breyta tímamörkunum ef mikil þátttaka verður í æfingunni.

Við notum Google Meet til að spjalla saman áður en við byrjum og á milli umferða. Smellið á “Open video room” og það segir sig sjálft hvernig það virkar.

Torenlo hefur breyst mikið frá því að við notuðum það síðast, en vonandi verður það ekki vandamál.

okt
4
Fös
Íslandsmót Skákfélaga – fyrri hluti @ Rimaskóli
okt 4 @ 19:00 – okt 6 @ 15:00
Íslandsmót Skákfélaga - fyrri hluti @ Rimaskóli

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram 4-6 október 2024 í Rimaskóla Gravarvogi.

Nánar um Íslandsmót skákfélaga hér.

okt
14
Mán
Skákæfing á Tornelo @ Tornelo.com
okt 14 @ 20:45 – 22:45
nóv
2
Lau
Atskákmót Goðans 2024 @ Framsýn
nóv 2 @ 10:30 – 17:30
Atskákmót Goðans 2024 @ Framsýn
Atskákmót Goðans 2024 fer fram í Framsýnarsalnum á Húsavík laugardaginn 2. nóvember og hefst kl 10:30. Mótið verður 7 umferðir með 15+5 tímamörkum. (Hádegishlé eftir 3 umferð) Einungis verður tekið við skráningum í gegnum tengilinn hér að neðan. Skráningu lýkur föstudaginn 1. nóvember kl 20:00
Goðans rapid chess tournament 2024 will take place in the Framsyn in Húsavík (Garðarsbraut 26) on Saturday, November 2, starting at 10:30 a.m. The tournament will be 7 rounds with 15+5 time limits. (Lunch break after round 3) Registrations will only be accepted through the link below. Registration ends on Friday, November 1 at 20:00
apr
9
Mið
Reykjavík Open 2025 @ Harpa
apr 9 @ 12:00 – apr 16 @ 20:00
Reykjavík Open 2025 @ Harpa

Allt um mótið hér: