Æfinga og mótaáætlun Goðans 2024-25. Chess events 2024-25
![Septembermót Goðans 2023 @ Framsýn](https://i0.wp.com/godinn.is/wp-content/uploads/2020/09/Framsyn-Nyleg-mynd-scaled.jpg?fit=250%2C141&ssl=1)
Septemberskákmót Goðans 2023 fer fram í Framsýnarsalnum mánudagskvöldið 18. september og hefst það kl 20:00. Mótið er hraðskákmót og eru tímamörkin 5 mín með 3 sek viðbótartíma á hvern leik. Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til hraðskákstiga hjá FIDE. Líkleg mótslok eru um kl 22:00
Ekkert þátttökugjald er í mótið og engin verðlaun verða veitt.
Mótið er opið öllum áhugasömum og skráning í það er hafin. Áhugasamir geta skráð sig til leiks á facebook síðu Goðans eða haft samband við Hermann formann í síma 8213187.
![Íslandsmót Skákfélaga - fyrri hluti @ Rimaskóli](https://i0.wp.com/godinn.is/wp-content/uploads/2023/08/rimaskoli.jpg?fit=250%2C167&ssl=1)
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2023-24 fer fram helgina 13-15 október. Mótið fer fram í Rimaskóla í Grafarvogi er Fjölnishöllinn.
Smá breytingar verða á umferðartíma. Kvöldumferðin á föstudag hefjast kl. 19:00 (í stað kl. 19:30). Helgarumferðir hefjast kl. 11:00 og 17:30 (í stað kl. 17:00). Taflmennska í öllum deildum hefst á sama tíma.