28.7.2012 kl. 12:44
Bolvíkingar í fyrstu umferð.
Í gærkvöld var dregið í forkeppni og fyrstu umferð Hraðskákkeppni taflfélaga. Hvorug tveggja á að vera lokið eigi síður en 15. ágúst nk. Allmikið er um spennandi viðureignir og má þar nefna að Taflfélag Bolungarvíkur og Skákfélagið Goðinn mætast í 1. umferð. Bolvíkingar eru ríkjandi meistarar þannig að það er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Ekki hefur verið ákveðið hvenær viðureignin fer fram.
Forkeppni:
- Skákfélag Selfoss og nágrennis – Skákdeild Hauka
- Taflfélag Vestmannaeyja – Víkingaklúbburinn
1. umferð (16 liða úrslit)
- Skákfélag Reykjanesbæjar – Taflfélag Vestmannaeyja/Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar – Taflfélagið Mátar
- Briddsfjelagið – Taflfélagið Akraness
- Taflfélag Garðabæjar – Skákdeild Vinjar
- Taflfélag Bolungarvíkur – Skákfélagið Goðinn
- Taflfélagið Hellir – Skákfélag Selfoss og nágrennis/Skákdeild Hauka
- Skákdeild Fjölnis – Taflfélag Reykjavíkur
- Skákdeild KR -Skákfélag Íslands