Rúnar Ísleifsson til liðs við SA.

Rúnar Ísleifsson hefur tilkynnt félagaskipti úr Goðanum í Skákfélag Akureyrar.

ís 2010 028

                                  Rúnar Ísleifsson. 

Rúnar hefur verið einn af máttarstólpum Goðans frá því að hann flutti að austan fyrir 6 árum síðan. Rúnar varð skákmeistari Goðans í febrúar 2012 í annað sinn, en Rúnar vann titilinn einnig árið 2010. Rúnar hefur einnig unnið hin ýmsu styttri skákmót Goðans  á undanförnum árum.

Rúnar hefur verið fastamaður í A og B-sveitum Goðans í Íslandsmóti skákfélaga um árabil og alltaf staðið sig með miklum sóma.  

Stjón Skákfélagsins Goðans óskar Rúnari góðs gengis með Skákfélagi Akureyrar í framtíðinni.