hugin_brúnt og bláttFyrsta skákkvöld í Mjóddinni hjá Skákfélaginu Huginn verður atkvöld mánudaginn  5. janúar 2014. og hefst mótið kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með fimmtán mínútna umhugsun. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Sigurvegarinn á atkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).