Dagskrá

Æfinga og mótaáætlun Goðans 2023-24. Chess events 2023-24

sep
18
Mán
Septembermót Goðans 2023 @ Framsýn
sep 18 @ 20:00 – 22:00
Septembermót Goðans 2023 @ Framsýn

Septemberskákmót Goðans 2023 fer fram í Framsýnarsalnum mánudagskvöldið 18. september og hefst það kl 20:00. Mótið er hraðskákmót og eru tímamörkin 5 mín með 3 sek viðbótartíma á hvern leik. Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til hraðskákstiga hjá FIDE. Líkleg mótslok eru um kl 22:00

Ekkert þátttökugjald er í mótið og engin verðlaun verða veitt.

Mótið er opið öllum áhugasömum og skráning í það er hafin. Áhugasamir geta skráð sig til leiks á facebook síðu Goðans eða haft samband við Hermann formann í síma 8213187.

Mótið á chess results.

sep
25
Mán
Skákæfing Vöglum @ Vaglir Fnjóskadal
sep 25 @ 20:30 – 22:30
Skákæfing Vöglum @ Vaglir Fnjóskadal

Skákæfing Vöglum í Fnjóskadal kl 20:30. Allir velkomnir.

okt
2
Mán
Skákæfing Chess.com @ https://www.chess.com/club/skakfelagid-godinn
okt 2 @ 20:00 – 22:00
okt
9
Mán
Skákæfing Framsýn @ Framsýn
okt 9 @ 20:00 – 22:00
okt
13
Fös
Íslandsmót Skákfélaga – fyrri hluti @ Rimaskóli
okt 13 @ 19:00 – okt 15 @ 14:30
Íslandsmót Skákfélaga - fyrri hluti @ Rimaskóli

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2023-24 fer fram helgina 13-15 október. Mótið fer fram í Rimaskóla í Grafarvogi er Fjölnishöllinn.

Smá breytingar verða á umferðartíma. Kvöldumferðin á föstudag hefjast kl. 19:00 (í stað kl. 19:30). Helgarumferðir hefjast kl. 11:00 og 17:30  (í stað kl. 17:00). Taflmennska í öllum deildum hefst á sama tíma.