Mjóddarmótið fer fram laugardaginn 13. júní í göngugötunni í Mjódd.  Mótið hefst kl. 14 og er mótið öllum opið. Góð verðlaun í boði.  Á síðasta ári sigraði Frú Sigurlaug en fyrir hana tefldi Einar Hjali Jensson.  Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma.  Skráning fer fram í síma 866-0116 og á skak.is Upplýsingar um skráða keppendur má finna hérÞátttaka er ókeypis!

Mjóddarmótið var fyrst haldið 1999 og hét þá Kosningamót Hellis og fór fram á kjördegi. Á fyrsta mótinu sigraði Hannes Hlífar Stefánsson sem tefldi fyrir Símvirkjann. Mótið fékk fljótlega nafnið Mjóddarmótið enda ekki hægt að halda kosningamót á hverju ári og ekki var mögulegt að halda mótið á kjördegi eftir að félagið flutti í núverandi húsnæði.

Verðlaun eru sem hér segir:

  • 1. 15.000
  • 2. 10.000
  • 3.   5.000

Skráning: