Óskar Víkingur Davíðsson vann eldri flokkinn og Gunnar Freyr Valsson yngri flokkinn á Huginsæfing sem haldin var 23. janúar sl. Óskar fékk 6v af sex mögulegum. Hann fékk 5v af fimm út úr skákunum og var með dæmi æfingarinnar rétt eins og allir sem reyndu við það. Dæmið var hróksendatafl þar sem báðir höfðu tvo hróka og alls ekki auðvelt. Stefán Orri varð annar með 5v. Hann leysti dæmið rétt og kom auk þess með hugmynd að annarri lausn sem var athyglisverð en betur að því síðar. Síðan komu jöfn með 4v Rayan Sharifa og Batel Goitom Haile.Í stigaútreikningnum naut Rayan þess að hafa fengið báða efstu menn og vann þriðja sætið á stigum. Lokaröð efstu manna í eldri flokki var því sú sama og á síðustu æfingu.
Yngri flokkurinn vannst einnig með fullu húsi en það gerði Gunnar Freyr Valsson með 5v af fimm mögulegum. Gunnar Freyr hefur verið á góðu skriði undanfarið og tekið þó nokkrum framförum. Annar var Brynjólfur Yan Brynjólfsson með 4v og þriðji var Adrian Efraim með 3,5v á sinni fyrstu æfingu. Þeir þrír eru allir fæddir 1999 og voru einnig allir í Hólabrekkuskóla þangað til Brynjólfur flutti í Árbæinn um áramótin og skipti um skóla.

Í æfingunni tóku þátt: Óskar Víkingur Davíðsson, Stefán Orri Davíðsson, Rayan Sharifa, Batel Goitom Haile, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Andri Hrannar Elvarsson, Brynjar Haraldsson, Einar Dagur Brynjarsson, Garðar Már Einarsson, Daníel Guðjónsson, Gunnar Freyr Valsson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson, Adrian Efraím, Jóhann Guðjónsson, Alfreð Dossing, Witbet Goitom Haile og Bjartur  Freyr Heide Jörgensen.

Næsta æfing verður mánudaginn 30. janúar 2017 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.

Dæmið á æfingunni:

Hvítur á leik. Hver er besta áætlunin fyrir hvítan í þessu hróksendatafli sem virðist vera í nokkru jafnvægi ?

  1. Hvítur á að taka opnu línuna með 1. He1 og stefna að því að tvöfalda hrókana á línunni.
  2. Það er lítil framtíð fyrir hvítu hrókana á drottningarvæng og allir mikilvægustu reitirnir á e-línunni eru valdaðir svo málið er að ýta peðunum á kóngsvængnum fram og færa hrókana þangað.
  3. Best er að leika 1. a4. Þá er 1…..a6 þvingað sem gefur hviti færi á eftirfarandi leið: 2. axb5 axb5 3. Hxa8 Hxa8 4. He1 og hvítur gefur eftir a-línuna og næ í staðinn tökum á e-línunni.
  4. Svartur hefur örlitla yfirburði vegna meira rýmis. Best er því að tryggja jafnteflið með 1. a4 a6 2. a5. Með drottningarvænginn lokaðan er líklegt að skipt verði á hrókum eftir e-línunni og jafntefli samið í framhaldi af því.
  5. Hvítur stendur betur þar sem hann á leik og getur nýtt sér möguleika á a-línunni. Hann byrjar með 1. a4 og eftir svarið 1…..a6 kemur hinn lúmski leikur 2. Ha3. Í framhaldinu getur hvítur tvöfaldað hrókana á a-línunni og tekið völdin á henni og ráðist á veikleika svarts á drottningarvæng með öðrum eða báðum hrókunum.

Eins og fram hefur komið var á æfingunni stungið upp á framhaldinu: 1. a4  a6 2. axb5  axb5  3. Ha5 fyrir hvítan. Það er vissulega rétt að hvítur hefur aðeins betri stöðu en eftir 3….Hdb8 4. Hba1  Hxa5  5. bxa5 b4 eru jafnteflismöguleikar svarts mjög góðir. Ef boðið hefði verið upp á þennan möguleika í krossaprófinu hefði líklega verið gefinn hálfur vinningur fyrir þessa lausn. Rétta framhaldið í lið 5 er miklu beittara. Ef svartur víkur hróknum undan á a-línunni og leggst í óvirka vörn þá skipir hvítur upp á peðum á b5 og tekur svo sjöundu reitaröðina með öðrum eða báðum hrókunum og stendur til vinnings. Ef svartur velur hins vegar að drepa peðið á a4 þá tvöfaldar hvítur hrókana  á-línunni og getur unnið peðið á a6 með því að leika b-peðinu fram eða jafnvel tvöfaldað hrókana á fimmtu reitaröðinni eftir því hvernig svartur bregst við.