Önnur umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni í gærkvöldi. Teflt var fjörlega í báðum flokkum og ljóst að leikgleðin réð ríkjum. Vel úthugsaðar leikfléttur voru galdraðar fram og lævísar gildrur lagðar fyrir óvarkára.

Af A-flokki.

Á fyrsta borði, náði hinn ungi meistari, Örn Leó Jóhannsson, jafntefli gegn Jóhanni Hjartarsyni, stigahæsta skákmanni mótsins í spennandi skák. Stórmeistarinn var með svart og náði fljótlega að jafna taflið og ríflega það. Örn Leó lét af hendi skiptamun í tilraun til þess að blíðka goðin og fékk í kjölfarið vel teflandi stöðu með sterkan biskup á d4.

Hér lék Örn Leó 35. Hh4 og svo virtist sem hvítur væri að ná að máta svartan en Jóhann var vandanum vaxinn og lék eina varnarleiknum í stöðunni þrátt fyrir að eiga ekki nema nokkrar sekúndur eftir á klukkunni.
35. …f6
36. Dxf6 Df5+
37. Dxf5 gxf5
38. Hf4 Hér hefði verið nákvæmara að leika (38. Hh5) og hvítur vinnur f peðið og er með einhverja vinningsmöguleika, þó svo svartur ætti að halda jöfnu með bestu taflmennsku.
38. … Hf7
39. g4 Nú leysist skákin upp í jafntefli.
39. … fxg4
40. Hxg4+ Kh7
41. Hh4+ Kg6
42. Hg4+ Kh7 Ef 42. …Kf5 þá 43. Hf4+ og svo skiptir hvítur upp á hrókum og drepur peðið á a7, líklega með unnu tafli.
43. Hh4+ Kg6 Og hér sættust keppendur á skiptan hlut.

Skák Friðriks Ólafssonar og Olivers Arons Jóhannessonar var frestað vegna veikinda. Halldór Grétar Einarsson lá fyrir Guðmundi Kjartanssyni sem fer vel af stað í mótinu. Lenka Ptácníková náði baráttujafntefli á móti Þresti Þórhallssyni en hún hafði staðið lakar langan hluta skákarinnar. Vel gert hjá Lenku.

TR-ingarnir, Benedikt Jónasson og Björn Þorfinnsson, háðu mikla rimmu sem endaði með jafntefli eftir að þeir félagar höfðu skipst á að hafa betra lungann úr skákinni. Daði Ómarsson vann ungstirnið Vigni Vatnar og Jón Hálfdánarson sigraði Jóhann Ingvason í vel tefldri skák. „Nú dugði þrekið alla skákina“ sagði Jón að viðureigninni lokinni með tilvísan í fyrstu umferðina, þegar hann tapaði gegn Guðmundi Kjartanssyni eftir að hafa átt í fullu tré við alþjóðlega meistarann lengi tafls.

Ögmundur Kristinsson landaði jafntefli með hvítu gegn Jóni L. Árnasyni í langri baráttuskák. Fide meistararnir Þorsteinn Þorsteinsson og Ingvar Þór Jóhannesson slíðruðu sverðin snemma, meðan Magnús Örn náði að svíða Björn Halldórsson.

Magnús hafði reyndar boðið Birni jafntefli fyrir tímamörkin en þá var staðan í dýnamísku jafnvægi og skammur tími aflögu en Björn heyrði það ekki og lék næsta leik eins og ekkert hefði í skorist.

Hinn ungi Björn Hólm Birkisson vann góðan sigur á hinum þrautreynda Björgvini Víglundssyni. Björn Hólm var með svart og jafnaði taflið eftir byrjunina. Björn tefldi svo framhaldið af festu og staða Björgvins versnaði þar til eitthvað varð undan að láta í endataflinu.

Gauti Páll tefldi mjög vel gegn Sigurbirni Björnssyni og hélt jöfnu tafli alveg fram í endatafl, þegar hvor átti 4 peð auk biskups. Biskuparnir voru samlitir og Sigurbjörn náði að koma sínum peðum fyrir á gagnstæðum reitalit biskupunum meðan Gauti neyddist til að verja 3 peð með einum biskupi. Það var of mikið og Sigurbjörn hafði að lokum sigur. Kristján Eðvarðsson sigraði Guðlaugu Þorsteinsdóttur með snoturri fléttu, drottningarfórn sem Guðlaugu yfirsást.

Upplýsingar um önnur úrslit umferðarinnar má finna hér.

 

Staðan í A-flokki:

Efstir, með tvo vinninga af tveimur mögulegum, eru Guðmundur Kjartansson, Daði Ómarsson og Dagur Ragnarsson. Fast á hæla þeim, koma svo tíu sterkir skákmenn, Jóhann Hjartarsson, Þórhallsson Þröstur, Björn Þorfinnsson, Örn Leó Jóhannsson, Lenka Ptácníková, Helgi Áss Grétarsson, Andri Áss Grétarsson, Sigfússon Sigurður Daði, Benedikt Jónasson og Magnús Örn Úlfarsson.

 

B-flokkur:

Í B-flokki bar það helst til tíðinda, að Ólafur Evert Úlfsson náði jafntefli á efsta borði gegn Agnari Tómasi Möller. Þá hafði Birkir Karl Sigurðsson betur gegn Jóni Eggerti Hallssyni í baráttuskák. Hinir ungu meistarar, Róbert Luu og Óskar Víkingur Davíðsson sættust á jafnan hlut. Þá vann Hörður Aron Hauksson sigur á Stefáni Orra Davíðssyni og stigahæsti maður flokksins, Jón Trausti Harðarson, hafði sigur á Ísaki Orra Karlssyni. Hrund Hauksdóttir vann Freyju Birkisdóttur en annars urðu úrslit í B-flokki með eftirfarandi hætti: http://chess-results.com/tnr257788.aspx?lan=1&art=2&rd=2&wi=821

 

Staðan í B-flokki:

Birkir Karl Sigurðsson, Hörður Aron Hauksson, Stephan Briem og Hrund Hauksdóttir hafa öll tvo vinninga eftir tvær umferðir. Þar á eftir koma 7 með einn og hálfan; Óskar Víkingur Davíðsson, Róbert Luu, Jón Trausti Harðarson, Birkir Ísak Jóhannsson, Agnar Tómas Möller, Ólafur Evert Úlfsson og Svava Þorsteinsdóttir.

Ljóst er að fjör fer að færast í leikinn í báðum flokkum. Þegar hefur verið parað fyrir næstu umferð og ljóst að margar áhugaverðar og spennandi viðureignir verða tefldar næsta þriðjudagskvöld í Stúkunni við Kópavogsvöll. Áhugasamir hvattir til þess að gera sér ferð í Kópavog. Heitt á könnunni sem endranær og bruðerí til þess að slá á spennuna.

 


Myndaalbúm: Önnur umferð