Dagskrá

Æfinga og mótaáætlun Goðans 2023-24. Chess events 2023-24

apr
14
Fös
Skákþing Norðlendinga @ Skákheimilið
apr 14 @ 19:00 – apr 16 @ 12:30
Skákþing Norðlendinga @ Skákheimilið

Skákþing Norðlendinga verður haldið á Akureyri dagana 14-16. apríl 2023. Mótið verður með breyttu sniði frá því sem tíðkast hefur flest undanfarin ár.

Dagskrá:
Föstudagur 14. apríl kl. 19:00, 1-3. umferð.
Laugardagur 15. apríl kl. 11:00, 4-7. umferð.
Sunnudagur 16. apríl kl. 10.00, 8-9. umferð.

Hraðskákmót Norðlendinga að lokinni 9. umferð.

VÆNTANLEGIR KEPPENDUR ATHUGID að fjöldi umferða miðar við það að keppendur verði a.m.k. 20. Mótshaldari getur ákveðið að fækka umferðum um eina eða tvær ef keppendur verða færri.

Umhugsunartími: 15-10 (atskákir). Í hraðskákmótinu 3-2.

Verðlaun:
1. sæti kr. 55.000
2. sæti kr. 30.000
3. sæti kr. 20.000
Stuðst verður við Hort-kerfið þegar verðlaunum er skipt.

Öllum er heimil þátttaka og allir keppendur eiga tilkall til peningarverðlauna. Teflt er um þrjá meistaratitla:
Skákmeistari Norðlendinga
Skákmeistari Norðlendinga í unglingaflokki (f. 2007 og síðar)
Hraðskákmeistari Norðlendinga.
Aðeins þeir keppendur sem á lögheimili á Norðurlandi geta unnið þessa titla.
Núverandi Skákmeistari Norðlendinga (og hraðskákmeistari) er Áskell Örn Kárason.

Mótið reiknast til alþjóðlegra atskák- og hraðskákstiga.

Þátttökugjald er kr. 4.000, kr. 2.000 fyrir börn f. 2007 og síðar.

Þátttöku má tilkynna í netfangið askell@simnet.is, og í gula kassann á skak.is

Skráningaform
Þegar skráðir keppendur

apr
16
Sun
Hraðskákmót Norðlendinga 2023 @ Íþróttahöllin Akureyri
apr 16 @ 13:00 – 16:00
Hraðskákmót Norðlendinga 2023 @ Íþróttahöllin Akureyri

Hraðskákmót Norðlendinga fer fram á sama stað og Skákþing Norðlendinga að loknum síðarnefnda mótinu. Nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir en líklega hefst það ekki fyrr en kl 13:00

apr
25
Þri
Skákmót Völsungs @ Vallarhúsið PCC völlurinn
apr 25 @ 16:00 – 17:30
Skákmót Völsungs @ Vallarhúsið PCC völlurinn

Skákmót Völsungs fer nú fram í fyrsta sinn. Allir áhugasamir félaagsmenn í Völsungi, sem eru stiglausir geta tekið þátt í mótinu. Umferðafjöldinn fer eftir keppendarfjölda en verða að hámarki 7 talsins.

apr
30
Sun
Goðinn chess tournament 1 @ Chess.com
apr 30 @ 20:30 – 22:00
maí
1
Mán
Goðinn chess tournament 2 @ Chess.com
maí 1 @ 20:30 – 22:00