Jólapakkaskákmót – Skráning og skráðir keppendur

    0
    874
    When:
    16. desember, 2018 @ 13:00 – 16:00
    2018-12-16T13:00:00+00:00
    2018-12-16T16:00:00+00:00
    Where:
    Álfhólsskóli
    Álfhólsvegi 120
    Cost:
    Free
    Contact:
    Vigfús Ó. Vigfússon
    8635116

    Jólapakkaskákmót Hugins og Skákdeildar Breiðabliks verður haldið sunnudaginn 16. desember næstkomandi í Álfhólsskóla (Hjallaskóli Álfhólsvegi 120). Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er ætlað börnum og unglingum og fer nú fram í 21. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.

    Keppt verður í allt að 6 flokkum:

    – Flokki fæddra 2003-2005
    – Flokki fæddra 2006-2007
    – Flokki fæddra 2008-2009
    – Flokki fæddra 2010-2011
    – Flokki fæddra 2012 síðar
    – Peðaskák fyrir þau yngstu

    Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig
    .
    Með von um að sjá sem flesta á einu fjölmennasta og skemmtilegasta skákmóti ársins!

    Skráningarsíða fyrir jólapakkamótið

    Skráðir keppendur