Páskaeggjamót Hugins 2019

    0
    897
    When:
    1. apríl, 2019 @ 17:00 – 19:30
    2019-04-01T17:00:00+00:00
    2019-04-01T19:30:00+00:00
    Where:
    Félagsheimili Hugins í Mjódd
    Álfabakki 14a
    Mjódd
    Cost:
    Free
    Contact:
    Vigfús Ó. Vigfússon
    866-0116

    Páskaeggjamót Hugins verður haldið í 27. sinn mánudaginn 1. apríl 2019, og hefst taflið kl. 17, þ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsæfingar. Páskaeggjamótið kemur í stað mánudagsæfingar. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik. Mótið er opið öllum krökkum á grunnskólaaldri og verður reiknað til hraðskákstiga. Skráningarform er á skak.is

    Allir þátttakendur keppa í einum flokki en verðlaun verða veitt í tveimur aðskildum flokkum. Páskaegg verða í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í eldri flokki (fæddir 2003 – 2005) og yngri flokki (fæddir 2006 og síðar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fær einnig páskaegg sem og efstu þrjár stúlkurnar á mótinu. Að auki verða tvö páskaegg dregin út. Enginn fær þó fleiri en eitt páskaegg. Lítið páskaegg verður svo fyrir þá sem ekki vinna til verðlauna.

    Páskaeggjamótið verður jafnframt fyrir þá sem eru fæddir 2006 og síðar forkeppni fyrir Reykjavik Open Barnabliz. Efstu 2-3 sætin í þeim flokki gefa sæti í úrslitum sem fram fara 13. eða 14. apríl í tengslum við Reykjavíkurskákmótið.

    Páskaeggjamótið verður haldið í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Lyfjaval í Mjódd en salur félagsins er á þriðju hæð hússins.