12_Islandsmot_Unglingasveita_2014Heimir Páll Ragnrsson sigraði á hraðkvöldi Hugins sem haldið var 2. febrúar sl. Heimir Páll fékk 7,5v í átta skákum og jafnteflið var við Óskar Víking Davíðsson í næst síðustu umferð. Annar varð Kristján Halldórsson með 7v og þriðji Sefán Orri Davíðsson með 5,5v.  Heimir Páll fékk þá að draga í fyrsta skipti á þessum æfingum einn heppinn þátttakanda. Hann vandaði valið og dró Björgvin Kristbergsson og völdu þeir báðir pizzu frá Dominos. Næsta hraðkvöld verður svo mánudaginn 23. febrúar nk.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Heimir Páll Ragnrsson, 7,5v/8
  2. Kristján Halldórsson, 7v
  3. Stefán Orri Davíðsson, 5,5v
  4. Vigfús Ó. Vigfússon, 5v
  5. Óskar Víkingur Davíðsson, 4,5v
  6. Hörður Jónasson, 4,5v
  7. Sigurður Freyr Jónatansson, 4v
  8. Björgvin Kristbergsson, 4v
  9. Hjálmar Sigurvaldason, 3v