Hér fyrir neðan má lesa allar fundargerðir Skákfélagsins Goðans frá stofnun félagsins árið 2005. Einnig má lesa allar starfs/ársskýrslur Goðans og hverjir hafa verið valdir skákmenn árins hjá HSÞ. Neðst á síðunni má fræðast um aðdraganda að stofnun Goðans árið 2004.
2024____________________________________________
Ákvörðun stjórnar vegna félagsgjalda 2024
Fundargerð Aðalfundur Goðans 2024
Ársskýrsla Skákfélagsins Goðans 2023
Skákmaður ársins 2023 – Smári Sigurðsson
2023______________________________________
Fundargerð Aðalfundar Goðans 6 mars 2023
Starfsskýrsla Skákfélagsins Goðans 2022
2022________________________________________
Starfsskýrsla Skákfélagsins Goðans 2022
Fundargerð aðalfundar Goðans 2022
2021________________________________________
Aðalfundur Skákfélagsins Goðans 2. mars 2021
Ársskýrsla Skákfélagsins Goðans 2021
2020____________________________________________
Skákmaður ársins 2020 var ekki tilnefndur
2019___________________________________________
Skákmaður ársins 2019 var ekki tilnefndur
2018__________________________________________
2017____________________________________________
Skákfélagið Hug…rfskýrsla 2017.docx
2016_____________________________________________
Ársskýrsla Skákfélagsins Hugins 2016
2015_____________________________________________
Ársskýrsla Skákfélagsins Hugins 2015
2014____________________________________________
Skákmaður HSÞ 2014 Í fyrsta skipti.
Ársskýrsla Skákfélagsins Hugins 2014
2013_____________________________________________
Ársskýrsla Skákfélagsins GM-Hellis 2013
2012_____________________________________________
_rsskyrsla_skakfelagsins_go_ans_2012
2011___________________________________
fundarger_a_alfundar_go_ans_2011
2010___________________________________
a_alfundur_go_ans_24_mars_2010
2009__________________________________
_rsskyrsla_skakfelagsins_go_ans_2009
2008________________________________
stjornarfundur_2_september_2008
2007____________________________
felagsfundur_11_september_2007
2006___________________________
a_alfundur_go_ans_21_mars_2006
2005___________________________________
felagsfundur_a_fossholi_13_sept_2005
1_stjornarfundur_skakfelagsins_go_ans
Um stofnun skákfélagsis Goðans.
Snemma í febrúar 2004 auglýsti Ármann Olgeirsson á Vatnsleysu í Hlupastelpunni eftir hvort einhverjir í Þingeyjarsveit hefðu áhuga á því að tefla. Í ljós kom að nokkrir höfðu áhuga fyrir því.
Þann 19 febrúar 2004 hittust 3 skákmenn á Fosshóli og héldu okkar fyrsta formlega skákkvöld, en það voru þeir Ármann Olgeirsson, Hallur Birkir Reynisson og Hermann Aðalsteinsson.
Viku seinna hittust 5 skákmenn á Stórutjörnum, þessir þrír áðurnefndu auk Baldurs Daníelssonar og Jóhanns Sigurðssonar. Alls voru haldnar 8 skákæfingar þennan vetur með mis mikilli mætingu, eða frá 4 uppí 8 manns.
Vetrarstarfinu lauk svo síðan með 2ja kvölda skákmóti sem 8 skákmenn tóku þátt í á Fosshóli. þar var krýndur okkar fyrsti skákmeistari sem var Baldur Daníelsson. Hlaut hann 6,5 vinninga af 7 mögulegum. Ármann Olgeirsson varð annar með 5,5 vinninga og Jóhann Sigurðsson þriðji með 5 vinninga. Baldur fékk farandbikar að launum til varðveislu næsta árið, sem Ármann Olgeirsson gaf í tilefni dagsins. Þetta mót fór fram 25-26 apríl 2004. Umhugsunartíminn var 20 mín á mann. Mótið markaði lok vetrarstarfsins.
11. október sama ár hófst skákstarfið á nýjan leik. Fyrirkomulagið var með svipuðu sniði og veturinn áður, nema að nú var teflt annan hvern þriðjudag. Skákæfingarnar urðu 13 talsins. Nokkrir nýjir skákmenn bættust í hópinn, þegar á leið, þó svo að aldrei voru fleiri en 8 á hverri æfingu.
Snemma árs 2005 var stofnað formlegt skákfélag og 15 mars var kosin þriggja manna stjórn. Kosningu hlutu: Ármann Olgeirsson 5 atkvæði, Hermann Aðalsteinssson,5 atkvæði og Hallur B Reynisson 4 atkvæði. Aðrir sem fengu atkvæði voru Ketill Tryggvason 2 atkvæði, Jóhann Sigurðsson og Hólmfríður Eiríksdóttir 1 atkvæði hvort. Ákveðið var að stjórn skipti með sér verkum og væri hún kjörin til eins árs.
29 mars var haldinn stuttur fundur til að ákveða nafn á það. Fyrir valinu varð skákfélagið Goðinn. Stjórn hafði þá skipt með sér verkum , þannig að Hermann Aðalsteisson varð formaður, Ármann Olgeirsson ritari og Hallur B Reynisson gjaldkeri. Hófst þá skráning í félagið og skráðu sig 12 stofnfélagar í félagið..
Sótt var um aðild að skáksambandi Íslands og stefnt á að taka þátt í Íslandsmóti skákfélaga 4. deild vetruinn 2005-6.
Vetrarstarfinu lauk síðan með skákmóti á Fosshóli 12 og 19 apríl. Teflt var eftir monrad-kerfi 5 umferðir með 30 mín umhugsunartíma á mann. Að loknum 5 umferðum voru 3 keppendur efstir og jafnir með 4 vinninga, Ármann, Jóhann og Hallur. þeir kepptu sín á milli um efsta sætið í hrað- skákum en ekki fengust úrslit úr því heldur. Þá voru reiknuð út stig og eftir þann reikning stóð Ármann Olgeirsson uppi sem sigurvegari. Jóhann og Hallur deildu öðru sætinu. Ármann fékk því bikrarinn til varðveislu næsta árið.
( Formáli úr fundargerðabók skákfélagsins Goðans.) Hermann Aðalsteinsson.