Rúnar, Smári Sigurðsson og Jakob Sævar með sín verðlaun

Smári Sigurðsson er skákmeistari Goðans 2024 eftir sigur í hraðskákeinvígi við Rúnar Ísleifsson um titilinn í gærkvöld. Smári vann einvígið 2-1. Smári varð þar með skákmeistari Goðans í 5. skiptið, en einungis Rúnar hefur unnið titilinn oftar en Smári eða 6 sinnum alls.

Rúnar, Smári Sigurðsson og Jakob Sævar með sín verðlaun

Jakob Sævar Sigurðsson varð í 3. sæti eftir hraðskákeinvígi við Kristján Inga Smárason 1,5-0,5. Smári og Rúnar voru áður búnir að tefla tvær kappskákir um titilinn sem enduðu báðar með jafntefli og því þurfti hraðskákeinvígi til að fá fram úrslit. Sama staða var uppi í einvíginu um 3. sætið milli Jakobs og Kristjáns. Úrslit Skákþings Goðans á chess-results

Sigmundur Þorgrímsson og Kristján Ingi Smárason urði í 1 og 2 sæti í U-16 ára Skákþings Goðans 2024

Lokastaðan í Skákþingi Goðans 2024.

1  Smári Sigurðsson
2  Rúnar Ísleifsson
3  Jakob Sævar Sigurðsson
4  Kristján Ingi Smárason
5  Adam Ferenc Gulyas
6  Ingi Hafliði Guðjónsson
7  Hilmar Freyr Birgisson
8  Ingimar Ingimarsson
9.   Ævar Ákason
10. Sigmundur Þorgrímsson
11. Hermann Aðalsteinsson
12. Dorian Lesman

Síðasta einvígisskák skákþings Goðans fer fram í Framsýn í kvöld. Þar mætast Hilmar Freyr Birgisson og Ingimar Ingimarsson í síðari skák sinni um 7. sætið í mótinu. Hilmar vann fyrri skákina. Ingimar verður með hvítt í skákinni í kvöld.

Uppfært. Hilmar vann Ingimar í seinni skákinni og varð þar með í 7. sæti.

Stutt en snörp skákæfing fór fram fyrir úrslita skákirnar og úrslit urðu þessi:

Félag
1. Sigurðsson, Smári 1950 2.0
1. Gulyas Adam Ferenc 1571 2.0
1. Smarason, Kristjan Ingi 1443 2.0
4. Þorgrímsson, Sigmundur 0.0